Um helgina verður sjómannadeginum fagnað víða um land, meðal annars í Múlaþingi.
Hægt verður að njóta skemmtilegrar dagskrár bæði á Djúpavogi og Seyðisfirði.
Það verður meðal annars hægt að kíkja í siglingu, fylgjast með ýmsum þrautum, taka þátt í dorgveiðikeppni, spreyta sig í pub quiz-i, skoppa í hoppukastala og fara á hestbak, svo fátt eitt sé nefnt!
Múlaþing óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!