Seyðisfjarðarskóli auglýsir lausa til umsóknar stöðu aðstoðarskólastjóra yfir leikskóladeild skólans. Um 100% framtíðarstarf er að ræða frá 1. ágúst næstkomandi. Næsti yfirmaður er skólastjóri Seyðisfjarðarskóla.
Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli með um 30 nemendur. Nánari upplýsingar um leikskólann, www.seydisfjardarskoli.sfk.is/is/leikskoladeild
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf. Aðstoð við að finna húsnæði á svæðinu ef þess þarf.
Umsóknarfrestur er til 5.júlí næstkomandi.
Hægt er að sækja um starfið hér: https://alfred.is/starf/adstodarskolastjori-leikskoladeildar-2
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Hrund Óladóttir skólastjóri í síma 866-8302 eða á netfanginu thorunn.oladottir@mulathing.is.