Heimastjórn Fljótsdalshéraðs heldur opna samtalsfundi á Fljótsdalshéraði á eftirfarandi tímum í mars og apríl.
Í Brúarásskóla 27. mars klukkan 20.00 – 21.30 en á fundinn mæta fulltrúar Rarik sem munu kynna strengvæðingu Rarik á Jökuldal.
Í félagsheimilinu Iðavöllum 3. apríl. klukkan 20.00 – 21.30.
Í Þingmúla (Valaskjálf) 4. apríl klukkan 17.00 – 18.30.
Í Eiðar gistihúsi 4. apríl klukkan 20.00 – 21.30 en á fundinn mætir fulltrú HEF veitna sem kynnir stöðuna á lagningu hitaveitu út í Eiða.
Á öllum fundunum mun heimastjórnin leita eftir hugmyndum að minni framkvæmdaverkefnum á sviði umhverfis- og skipulagsmála en um þau má lesa á heimasíðu sveitarfélagsins.