Það er frábært að sjá hversu vel hefur verið tekið í nýjan ærslabelg í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum. Mikil stemmning hefur skapast á svæðinu og fólk á öllum aldri hefur nýtt sér þessa skemmtilegu viðbót sveitafélagsins.
Múlaþing vill skerpa á umgengnisreglum við slíka ærslabelgi og vill koma eftirfarandi á framfæri:
- Belgurinn er opinn frá 9:00 – 22:00, þennan tíma ber að virða
- Áður en farið er að hoppa á belgnum þarf að fara úr skóm
- Miklu skiptir að sýna tillit og kurteisi á belgnum
- Á svæðinu eru bæði bekkir og ruslatunnur og eru allir hvattir til þess að ganga vel um svæðið
Múlaþing minnir einnig á aðra ærslabelgi sveitafélagsins og vonar að það viðri vel til hvers konar útivistar í sumar!