Sveitarfélagið Múlaþing hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar þann 12. október síðastliðinn.
Markmið Jafnvægisvogarinnar er 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi, þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í efsta lagi stjórnunar hlutu viðurkenningar. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri og fjölgaði þeim þátttakendum sem hafa náð markmiðunum um 23 á milli ára. Á ráðstefnunni voru viðurkenningarhafar 76 talsins.
Að hreyfiaflsverkefninu standa Félag kvenna í atvinnulífinu, forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, PiparTBWA og Ríkisútvarpið.
Sigrún Hólm Þórleifsdóttir verkefnastjóri mannauðs hjá Múlaþingi var spurð út í mikilvægi þess að fá viðurkenningu sem þessa og sagði hún að ,,Múlaþing tekur stolt þátt í þessu verkefni sem hefur það markmið að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja og stofnana. Viðurkenningin segir okkur að við hjá Múlaþingi erum að ná þeim markmiðum sem lagt er upp með en hlutfallið hjá Múlaþingi er 50%, það er helmingur æðstu stjórnenda hjá Múlaþingi eru konur. Jafnrétti gerist ekki af sjálfu sér heldur er ákvörðun, eins og segir í slagorði Jafnvægisvogarinnar. Með því að taka þátt í verkefninu tekur Múlaþing ákvörðun um jafnvægi milli kynja í æðstu stjórnunarstöðum.“
Mikill vilji hefur verið hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum að vinna að jafnréttismálum þegar kemur að æðstu stjórnendum. Á árinu undirrituðu alls 47 fyrirtæki, 2 sveitarfélög og 8 opinberir aðilar viljayfirlýsingu um að vinna að markmiðum Jafnvægisvogarinnar. Þátttakendur eru orðnir 209 talsins.
Fjölbreyttur mannauður hefur jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja sem og starfsánægju og frammistöðu í starfi, stuðlar að betri ákvarðanatöku og aukinni verðmætasköpun þar sem nýsköpun og vöxtur verður frekar í hópi fólks með ólíkar skoðanir og bakgrunn. Þátttakendur hafa þannig sýnt í verki að þau vilja virkja allan mannauðinn.