Heimastjórn Djúpavogs boðar til íbúafundar á Kaffi Braz, Karlsstöðum miðvikudaginn 2. nóvember klukkan 20:00 - 22:00.
Þar munu fulltrúar í heimastjórn verða með stutt ávörp og svara síðan spurningum. Fundurinn er einkum ætlaður íbúum í dreifbýlinu við Berufjörð, þótt allir séu að sjálfsögðu velkomnir.
Íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum.
Heimastjórn Djúpavogs.