BMX BRÓS mæta í fyrsta skiptið á Egilsstaði með orkumikla BMX sýningu og skemmtilegt hjólanámskeið á planinu við Sláturhúsið sunnudaginn 30. júlí.
Klukkan 11:00 byrja þeir á sýningu sem stendur yfir í 30 mínútur. Sýningin samanstendur af stórum stökkum, peppandi tónlist, húmor, áhættu og brjáluðu stuði. Áhorfendur eru þátttakendur í sýningunni og geta BMX BRÓS lofað gæsahúð og einstakri upplifun.
Í lok sýningar stilla BMX BRÓS upp fyrir 1 klst námskeið þar sem þeir fara í stutta upphitun með krökkunum, fara yfir grundvallaratriðin og kenna krökkunum að fara yfir stökkpalla. Eftir það er sett upp þrautabraut sem krakkarnir spreyta sig á og endar námskeiðið á tímatöku með verðlaunum fyrir hraðasta tímann. Ekki er nauðsynlegt að mæta á BMX hjóli enda geta krakkarnir spreytt sig á pöllunum og þrautabrautinni á hverskyns hjólum. Hjálmaskylda er á námskeiðinu.
Viðburðurinn er styrktur af Múlaþingi og er aðgangur ókeypis.
BMX BRÓS hlakka til að sjá alla snillingana sem mæta.